sudurnes.net
Ástrós Norðurlandameistari í taekwondo í 5. skipti - Local Sudurnes
Ástrós Brynjarsdóttir varð Norðurlandameistari í taekwondo í fimmta skipti um helgina. Ástrós keppti í tveimur erfiðum flokkum og uppskar gull í tækni, en það var mjög stór sigur fyrir hana. Hún fékk einnig bronsverðlaun í bardaga – Hún var svo valin bardagakona mótsins. Ágætis hópur Íslendinga fór á mótið en hun var eini Keflvíkingurinn sem fór að þessu sinni. Ástæðan var sú að það var alþjóða taekwondo mót í Reykjavík á sama tíma þar sem stór hluti Keflvíkinga fór á, segir á Facebook-síðu Íþrótta og tómstundaráðs Reykjanesbæjar. Ástrós er að skrá sig í sögubækurnar en hún er þriðji Íslendingurinn frá upphafi sem nær fimm Norðurlandatitlum og sú eina sem nær því fyrir 18 ára aldur. Meira frá SuðurnesjumElvar Már á topp 5 lista yfir bestu leikmenn í FloridaUngur Njarðvíkingur keppti til úrslita á Íslandsmeistaramóti í skákFótboltinn fer á fullt á ný – Ólík staða SuðurnesjaliðannaU18 landsliðið Norðurlandameistari í körfu – Suðurnesjadrengir stóðu sig velGuðmundur Auðun keppir um milljónir króna á Stórbokka 2016Sundfólk ÍRB með 18 verðlaun á Lyngby-OpenFirnasterkar gamlar kempur mæta til leiks á firmamóti NjarðvíkurSuðurnesjamenn í fyrsta sæti í jeppaflokki á SauðárkrókiGrindavíkurtap á heimavelli og Keflavíkurtap á útivelliNjarðvíkingur keppir fyrir Noregs hönd á sterku borðtennismóti