Viðbragðsaðilar áberandi og opin hús á 112 deginum

Á morgun, 11.2 er 112 dagurinn og ætla lögreglan á Suðurnesjum að taka þátt í þeim degi ásamt öðrum viðbragðsaðilum í umdæminu.

Lögregla mun vera áberandi við grunnskóla í umdæminu ásamt slökkviliði og björgunarsveitum. Þá munu flestir viðbragðsaðilar bjóða gestum að skoða húsakynni og tæki.

Dagskrá má finna hér fyrir neðan, en eðli starfseminnar vegna getur hún breyst.

Kl. 07:50-08:30 munu neyðartæki lögreglu, slökkviliðs sem og björgunarsveita vera við flesta grunn- og leikskóla í umdæminu og munu viðbragðsaðilar vera áberandi þennan morguninn til að vekja athygli á deginum.

Kl. 16.00-17.00 verður húsnæði lögreglunnar á Suðurnesjum á Hringbraut opið í almenningi og gefst gestum tækifæri á að skoða tól og tæki lögreglu (að öllu óbreyttu)

Kl. 16.00-18.00 verður húsnæði Brunavarna Suðurnesja opið almenningi og gefst gestum að skoða tól og tæki slökkviliðs en þar verða einnig neyðarverðir frá Neyðarlínunni ásamt fulltrúum frá Rauði krossinum og Slysavarnarfélaginu Landsbjörg ásamt slökkviliðsmönnum og lögreglumönnum.

Kl. 17:15 verða verðlaun veitt fyrir flottustu myndirnar í litasamkeppni yngstu stiga í grunnskólum í umdæminu og RKÍ veitir einnig viðurkenningar.

Aðgerðarstjórnsstöðin okkar sem er staðsett í húsnæði Brunavarna Suðurnesja, AST verður opin og tll sýnis og starfsmaður Almannavarnardeildar verður á staðnum og kynnir starfsemi þar

Við hvetjum áhugasama um að koma og minnum á að við verðum áberandi við vonandi alla skóla í umdæminu þennan morgunin.