Vara við hálku á Suðurnesjum

Lögreglan á Suðurnesjum varar vegfarendur við hálku sem gæti myndast víðast hvar í umdæminu um miðjan dag í dag.

Í tilkynningu kemur fram að hálkan geti verið sérstaklega varasöm víða á göngustígum og bifreiðastæðum fyrir gangandi vegfarendur.