Uppskrift: Berja- og jógúrtskál með stökku múslí

Þessi dægrin er stefnan hjá mörgum væntanlega að komast í kjólinn fyrir jólin og munum við leggja okkar af mörkum svo fólk eigi meiri möguleika á að ná þeim markmiðum í samstarfi við Gymsen, sem er nýtt alhliða heilsuræktarapp.
Við byrjum á einföldu rjómakenndu grísktu jógúrti með stökkumúslí, ávöxtum og hunangi.
Undirbúningstími: 5 mínútur
Eldunartími: 0 mínútur
Heildartími: 5 mínútur
Erfiðleikastig: Auðvelt
Áætlað næringargildi í hverjum skammti:
400 kcal
31 g prótein
51 g kolvetni
8 g fita
Hráefni
- 250 g fitulaust grískt jógúrt eða skyr
- 40 g múslí
- 75 g jarðarber
- 50 g bláber
- 1 teskeið hunang
Leiðbeiningar:
- Setjið jógúrtið í skál.
- Skolið berin og skerið jarðarberin í sneiðar.
- Bætið múslíi og berjum út í skálina.
- Dreypið hunangi yfir og berið fram.
Gymsen heilsuræktsrappið býður upp á ýmsa möguleika til þæginda fyrir þá sem vilja lifa heilsusamlegu líferni, meðal annars má finna hollar uppskriftir, hugmyndir að æfingum hvort sem er í líkamsræktarstöð, heima eða úti í náttúrunni auk pistla um heilsurækt.





















