Stefan Alexander í Breiðablik

Stefan Alexander Ljubicic hefur undirritað samning við knattspyrnudeild Breiðabliks og gengur til liðs við bikarmeistarana um áramótin.

Stefan er 27 ára gamall hefur leikið með Keflavík undanfarin tvö tímabil. Á þeim tíma skoraði Stefan tuttugu mörk, þar af tólf talsins á nýliðnu Íslandsmóti.

“Ég er mjög ánægður með komu Stefans, hann býr yfir mörgum eiginleikum sem munu nýtast liðinu. Hann hefur verið frábær hjá Keflavík en ég held að hann eigi samt sem áður mikið inni og á von á að sjá það brjótast út í Breiðabliks treyjunni” segir Jökull Elísabetarson þjálfari Breiðabliks um komu Stefans í tilkynningu.