Njarðvík og Grindavík slíta samstarfi

Knattspyrnudeildir Grindavíkur og Njarðvíkur hafa ákveðið að slíta samstarfi um meistaraflokk kvenna. Samstarfið hefur staðið í tvö ár og árangur liðsins sem lék í Bestudeildinni á síðustu leiktíð verið eftirtektarverður.
Samkvæmt reglum KSÍ hafa Njarðvíkingar rétt á að halda sætinu í Bestu deildinni, en félagið hugsar næstu skref samkvæmt sameiginlegri yfirlýsingu frá knattspyrnudeildum félaganna sem má finna hér fyrir neðan í heild:
Knattspyrnudeildir Grindavíkur og Njarðvíkur hafa sameiginlega ákveðið að hætta samstarfi um meistaraflokk kvenna. Liðið hefur leikið undir merkjum Grindavíkur/Njarðvíkur síðastliðin tvö ár.
Samstarfið hefur verið einstaklega farsælt. Á fyrsta tímabilinu fór liðið upp úr Lengjudeildinni og tryggði sér sæti í Bestu deild kvenna. Á öðru árinu hélt liðið sæti sínu meðal þeirra bestu. Hápunkturinn var bikarúrslitaleikurinn á Laugardalsvelli, sem tapaðist naumlega eftir frábæra frammistöðu. Árangurinn sýnir þá vinnu, samheldni og metnað sem leikmenn, þjálfarar, stjórnir og sjálfboðaliðar beggja félaga lögðu í verkefnið.
Grindavík hefur ákveðið að snúa heim með liðið sitt. Á næsta keppnistímabili leikur meistaraflokkur kvenna undir nafni Grindavíkur, á heimavelli í Grindavík, og tekur þátt í 2. deild kvenna. Félagið lítur á þetta sem mikilvægt skref í að halda sjó og vera tilbúin að hefja uppbyggingu knattspyrnunnar og samfélagsins í Grindavík.
Njarðvík hefur rétt til að taka sæti í Bestu deild kvenna frá og með keppnistímabilinu 2027. Stjórn knattspyrnudeildar Njarðvíkur vinnur nú að því að skoða næstu skref og meta þá möguleika sem staðan býður upp á, með hagsmuni félagsins að leiðarljósi.
Félögin þakka öllum leikmönnum, þjálfurum, starfsfólki, sjálfboðaliðum, styrktaraðilum og stuðningsfólki fyrir þeirra framlag síðustu tvö ár. Stuðningurinn úr báðum bæjarfélögum hefur verið ómetanlegur. Við kveðjum samstarfið með stolti og þakklæti og óskum hvort öðru alls hins besta í framhaldinu.




















