Sektuð eftir slagsmál á Selfossi

Aga- og úrskurðarnefnd Körfuknattleikssambands Íslands hefur komist að þeirri niðurstöðu að háttsemi leikmanns kvennaliðs Njarðvíkur B, Anítu Helgadóttur, í leik gegn Selfossi, teljist alvarlega gróf eða ósæmileg samkvæmt reglugerð sambandsins eftir að upp úr sauð eftir baráttu á milli hennar og Nickelle Watkins í leik á dögunum þar sem þær féllu saman til jarðar.

Í kjölfarið má sjá Anítu slá Nickelle harkalega og bregst sú síðarnefnda illa við því og slær Anítu áður en leikmenn, dómari og starfslið stíga inn á milli þeirra.

Einn nefndarmaður skilaði sératkvæði og taldi háttsemi leikmannsins þess eðlis að hún falli undir d-lið sömu málsgreinar í reglugerðinni sem tekur til viljandi líkamsmeiðinga eða tilraunar til slíkra meiðinga. Fór svo að Aníta var sektuð um 40 þúsund krónur.

Nefndin tók einnig afstöðu til refsingar á hendur Nickelle, en hún skal sæta sekt að upphæð 40 þúsund krónum og fær að auki eins leiks bann vegna háttsemi sinnar.

Atvikið náðist á myndband sem sjá má hér