TAP bætir KEF á flugáætlun

Portúgalska flugfélagið TAP Air tilkynnti í dag að það ætlaði að hefja flug milli Keflavíkurflugvallar (KEF) og Lissabon á sumaráætlun sinni 2027. Flogið verður þrisvar í viku milli áfangastaðanna frá 1. apríl til 28. október 2027
TAP Air bætist þar með í hóp þeirra 28 flugfélaga sem hafa boðað að þau ætli að fljúga til og frá KEF næsta sumar.
Með tengimiðstöð TAP í Lissabon opnast jafnframt góðar tengingar fyrir farþega til fjölmargra áfangastaða, þar á meðal til Faro og Madeira í Portúgal, auk áfangastaða í Afríku og Suður-Ameríku.
„Það er afar ánægjulegt að bjóða TAP Air velkomið til Keflavíkurflugvallar. Lissabon er vinsæll og spennandi áfangastaður og um leið öflug tengimiðstöð til fjölmargra áfangastaða í Suður-Evrópu, Afríku og Suður-Ameríku. Við hlökkum til samstarfsins,“ segir Grétar Már Garðarsson, forstöðumaður flugfélaga og markaðsmála á KEF, í tilkynningu.





















