Gul viðvörun vegna veðurs

Veðurstofa gerir ráð fyrir suðaustan 13-20 metrum á sekúndu og rigningu aðfaranótt fimmtudags. Gular viðvaranir taka gildi klukkan þrjú.

Samkvæmt spá gætu vindhviður náð yfir 30 m/s við fjöll. Þá kemur fram að um sé að ræða varasamt veður fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind.