Fella trjágróður á Ásbrú

Starfsmenn á vegum Reykjanesbæjar hafa hafist handa við fellingar á runnum og trjágróðri  á Ásbrú, en um er að ræða  gamlan víði sem er úr sér sprottinn og er við að enda sína lífdaga. 

Í tilkynningu frá sveitarfélaginu segir að víðir af þessu tagi sé þannig gerður að hann má fella 20-30cm frá jörðu án þess að hann drepist, heldur getur hann endurnýjað sig og nýir stofnar vaxið upp frá rótarkerfi hans.  

Þá segir að þær framkvæmdir sem eru fyrirhugaðar geta  í fljótu bragði virst stórtækar og viðbúið að einhverjum bregði í brún þegar gróðurinn hverfur, en þær eru þó liður í því að byggja upp grænni og gróðursælli Ásbrú.

Fellingunum verður fylgt eftir með áburðargjöf að vori og  reglulegum snyrtingum komandi ár.