Davíð Smári og Halldór Geir hættir með Njarðvík

Davíð Smári Lamude og Halldór Geir Heiðarsson hafa látið af störfum sem þjálfarar meistaraflokks karla hjá Njarðvík.

Davíð Smári Lamude hefur sagt upp samningi sínum sem aðalliðs þjálfari meistaraflokks karla og Halldór Geir Heiðarsson, aðstoðarþjálfari, lætur einnig af störfum samhliða þeim breytingum, segir í tilkynningu frá Njarðvík. Davíð Smári sagði í samtali við fotbolti.net að ekki hafi verið samhljómur um hvernig framhaldið ætti að líta út.

Davíð og Halldór tóku við Njarðvíkurliðinu fyrir rúmu ári síðan og stýrðu liðinu í 5. sæti Lengjudeildarinnar sem gaf umspilssæti þar sem liðið féll úr leik í gegn Þrótti undanúrslitum.