Tímabundið drónabann í Grindavík

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákveðið að setja á tímabundið bann, í dag, við flugi dróna og annarra fjarstýrðra loftfara vegna aðgerða lögreglu við Vesturhóp 29 í Grindavík.

Aðgerðir lögreglu við Vesturhóp snúa að leit að líkamsleifum Lúðvíks Péturssonar, sem féll niður um jarðfall við störf í Grindavík í janúar 2024

Bannið gildir í dag, Þriðjudaginn 27. október 2026, frá klukkan 08:00 til 15:00, innan 50 metra radíuss frá Vesturhópi 29

Bannið nær til alls drónaflugs á svæðinu nema sérstök undanþága hafi verið veitt af lögreglu, segir í tilkynningu.

Mynd: Lögreglan á Suðurnesjum