Nýjast á Local Suðurnes

Tæplega 600 þúsund fóru um Keflavíkurflugvöll

Alls fóru 596.505 farþegar um Keflavíkurflugvöll í október mánuði. Þar af voru Kaupmannahöfn, London, París, New York og Boston vinsælustu áfangastaðirnir af þeim 69 áfangastöðum sem flogið var til.

Samkvæmt talningu frá Ferðamálastofu voru brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll tæplega 159 þúsund í október. Um er því að ræða fjórða fjölmennasta október-mánuðinn frá því mælingar hófust.

Bandaríkjamenn hafa verið fjölmennasta þjóðernið í október-mánuði frá árinu 2016, að undanskildu árinu 2020 þegar strangar ferðatakmarkanir giltu, segir á Facebook-síðu Keflavíkurflugvallar.