Nýjast á Local Suðurnes

Svona mun nýtt íþróttahús í Grindavík líta út – Myndband!

Framkvæmdir eru hafnar við byggingu nýs íþróttahús í Grindavík og þrátt fyrir enn sé nokkuð í verklok, sem áætluð eru í byrjun árs 2019, er nú hægt að skyggnast inn í framtíðina hér með þessum tölvuteiknuðu þrívíddarmyndum af íþróttamannvirkjunum eins og þau eiga að líta út að framkvæmdum loknum.

Mannvirkið verður um 2.500 m2 að stærð og samanstendur af fjölnota bardagasal, sjoppu, geymslum og íþróttahúsi. Húsið er hannað af Batteríinu arkitektum, Eflu verkfræðistofa sá um bruna- og rafmagnshönnun, Trivíum hljóðhannaði og  Strendingur hannaði burðarþol og lagnir. Tækniþjónusta SÁ mun sjá um byggingarstjórn og verkeftirlit. Skrifað var undir verksamning við Grindina í lok mars á þessu ári.