Nýjast á Local Suðurnes

Sjóslys við Vogastapa rakið til ölvunar

Myndin tengist fréttinni ekki beint

Blóðsýni staðfestu að menn sem sökktu skemmtibáti við Vogastapa í gærkvöldi voru ölvaðir. Kalla þurfti út björgunarsveitir, sem fyrir tilviljun voru við æfingar á sjó á svipuðum slóðum, auk þyrlu Landhelgisgæslunnar sem kom mönnunum tveimur á sjúkrahús í Reykjavík til aðhlynningar vegna kulda.

Að lokinni aðhlynningu voru þeir vistaðir í fangageymslum, en að báturinn er líklega gerónýtur.