Nýjast á Local Suðurnes

Ræddi milljónavinnig án þess að vita að hann væri nýjasti milljónamæringurinn

Karlmaður á sextugsaldri og íbúi í Reykjanesbæ heyrði af glænýjum milljónamæringi á kaffistofunni í vinnunni, án þess að átta sig á því að hann væri sjálfur heppni vinningshafinn sem hafði unnið um 11,5 milljónir í Vikinglottó þann dag.

Í fréttatilkynningu frá Íslenskri getspá er fjallað um nýjasta milljónamæring Reykjanesbæjar.

„Í spjalli við vinnufélagana samgladdist maðurinn vinningshafanum innilega yfir að hafa hreppt slíkan vinning í aðdraganda jólanna en datt um leið í hug að athuga sinn eigin miða – sem þá reyndist sjálfur milljónamiðinn. Já þau eru sannarlega heppin í Reykjanesbæ!“