Prófa Boeing 777-9 á Keflavíkurflugvelli

Ný flugvél Boeing verksmiðjanna, Boeing 777-9 lenti á Keflavíkurflugvelli þann 27. október síðastliðinn, en þetta er í fyrsta sinn sem vél af þessari gerð kemur til Íslands, segir á Facebook-síðunni Boeing 777X, sem fjallar eingöngu um þessa tilteknu gerð flugvéla.
Vélin er hér á landi til að framkvæma flugprófanir í hliðarvindi. Markmiðið er að meta stjórnhæfni hennar og frammistöðu við krefjandi vindskilyrði og munu þessar prófanir vera liður í vottunarferli 777X-vélarinnar, en veðurhorfur næstu daga þykja henta einkar vel til prófana. Spáð er hita á bilinu 4–9°C í Keflavík og töluverðum vindi eða um 16 m/s stöðugum vindi og allt að 27 m/s í hviðum, auk rigninga.

Ekki er nákvæmlega ljost hvenær flugprófanir fara fram en það fer eftir því hvort vindskilyrði henti og hvernig prófunarteymið sem fylgir vélinni metur aðstæður.
Vélar af þessari gerð hafa verið í þróun frá árinu 2011 og áætlað er að fyrstu vélarnar verði afhentar á næsta ári.
Myndir: Facebook/Boeing 777X



















