Ákvörðun um framhald leitar í höndum Grindavíkurbæjar

Ákvörðun um framhald leitar að Lúðvíki Péturssyni, sem féll í sprungu í Grindavík þann 10. janúar 2024, liggur nú hjá Grindavíkurbæ, en ekki verður ráðist í frekari leitaraðgerðir af hálfu lögreglu og telst þeim aðgerðum lokið. 

Aðgerðir gærdagsins tóku rúmar sjö klukkustundir og var meðal annars leitað í vatni. Engar vísbendingar fundust sem gætu varpað ljósi á hvar jarðneskar leifar Lúðvíks væri að finna, segir í tilkynningu frá lögreglu.

Svæðið við sprunguna er á forræði bæjarins, segir í frétt um málið á Vísi.is og samkvæmt heimildum miðilsins hefur ekki verið tekin ákvörðun um næstu skref, ný staða sé komin upp og hana þurfi að meta. Svæðið er afgirt og krefst töluverðrar vinnu þar til að það geti talist öruggt.