Nýjast á Local Suðurnes

Opinn íbúafundur Isavia – Kynna nýja flugferla og umhverfismælingar

Rekstraraðili Keflavíkurflugvallar, Isavia, stendur fyrir opnum íbúafundi í Hljómahöll klukkan 17 á morgun, miðvikudag. Á fundinum verður farið yfir þær framkvæmdir sem eru framundan á Keflavíkurflugvelli. Einnig verður farið yfir þær umhverfismælingar sem eru í gangi og kynntir nýir flugferlar. Farið verður yfir spár um ný bein störf sem skapast vegna aukinna umsvifa á Keflavíkurflugvelli og hvaða vaxtarverki það getur haft í för með sér.

Frummælendur á fundinum verða:

  • Björn Óli Hauksson forstjóri Isavia
  • Guðmundur Daði Rúnarsson framkvæmdastjóri tækni- og eignasviði Keflavíkurflugvallar
  • Haraldur Ólafsson yfirflugumferðarstjóri á Keflavíkurflugvelli
  • Valur Klemensson deildarstjóri umhverfisdeildar á Keflavíkurflugvelli
  • Guðný María Jóhannsdóttir aðstoðarframkvæmdastjóri á Keflavíkurflugvelli
  • Dr. Huginn Freyr Þorsteinsson sérfræðingur og eigandi Aton