Nýjar hlaupaleiðir og nýr rásstaður í Ljósanæturhlaupi

Ljósanæturhlaupið fer fram miðvikudaginn 3. september kl 18.30. Líkt og áður renna 500 krónur af hverri skráningu í Minningarsjóð Ölla, sem styrkir börn til íþróttaiðkunar sem ekki eiga kost á því vegna bágrar fjárhagsstöðu foreldra eða umsjónarmanna.
Ljósanæturhlaupið er árlegur viðburður sem fram fer í tengslum við Ljósanótt í Reykjanesbæ,börn keppt er í eftirtöldum vegalengdum: 3,5 km, 7 km og 10 km. Flögu tímamæling verður notuð í Ljósanæturhlaupinu í öllum vegalengdum. Ljósanæturhlaupið er tilvalið fyrir alla fjölskylduna og hægt að finna vegalendir við allra hæfi. Rásmark og endamark verða við Stapalaug, Dalsbraut 11, 260 Reykjanesbæ.
Búnings-og sturtuaðstaða er í Stapalaug, Reykjanesbær býður þátttakendum í sund að hlaupi loknu.
Dagskrá og tímasetningar:
- Ræsing í 10 km kl 18:30
- Ræsing í 7 km kl 18:35
- Ræsing í 3,5 km kl 18:40
Verðlaunaafhending verður um klukkan 19:50
- Hlaupið er aldursflokkaskipt í 7 og 10 km. og eru verðlaun fyrir besta árangur í öllum flokkum í 7 km og 10 km.
- Í 3,5 km. eru veitt verðlaun fyrir 15 ára og yngri og 16 ára og eldri.
- Glæsileg útdráttarverðlaun sem dregin verða úr nöfnum allra þátttakenda.
Þátttökugjald
- 3,5 km: 2.000 kr fyrir 15 ára og eldri, kr. 1.500 fyrir 14 ára og yngri.
- 7 km og 10 km: 3.000 kr fyrir 15 ára og eldri, kr. 2.000 fyrir 14 ára og yngri.
Athugið að skráningargjald hækkar um 1.000 fyrir alla flokka ef skráð er eftir kl 23.59 Mánudaginn 1. september.
Fólk er hvatt til að tryggja sér skráningu á netskraning.is (http://netskraning.is/) til að forðast óþarfa stress. Afhending keppnisgagna hefst kl 17 á hlaupadegi.
Umsjón hlaupsins er í höndum Vikars Sigurjónssonar.
Mynd: Ljósanótt.is