Íbúafundir í Sandgerði og Garði

Stýrihópur sem vinnur að úttekt á kostum og göllum sameiningar sveitarfélaganna Garðs og Sandgerðisbæjar boðar til íbúafunda í báðum sveitarfélögunum til kynningar á niðurstöðum úttektar.
Í Sandgerði verður íbúafundur mánudaginn 29. maí í Grunnskólanum í Sandgerði og hefst kl. 20:00. Vinsamlega athugið að í dreifibréfi til íbúa kom fram að fundurinn yrði haldinn í Vörðunni en fundurinn verður í grunnskólanum.
Í Garði verður íbúafundur miðvikudaginn 31. maí í Miðgarði, sal Gerðaskóla og hefst kl. 20:30.
Dagskrá fundanna er sem hér segir:
- Ráðgjafar KPMG kynna helstu niðurstöður greiningar varðandi sameiningu sveitarfélaganna.
- Næstu skref.
- Umræður.
Fundirnir eru að sjálfsögðu öllum opnir og vonandi sjá sem flestir sér fært að mæta. Íbúar eru velkomnir á hvorn fundinn sem er.