Nýjast á Local Suðurnes

Ný strætóskýli og stoppistöðvar sameinaðar

Ný og glæsileg strætóskýli hafa verið sett upp á Ásbrú og verða tekin í notkun föstudaginn 6. júní. Þá munu strætóskýlin við Grænásbraut og Bogabraut sameinast í eina stoppistöð sem ber nafnið Grænásbraut.

Með uppsetningu nýju skýlanna er markmiðið að bæta aðstöðu fyrir þá sem nýta sér almenningssamgöngur, tryggja aukið skjól og öryggi fyrir farþega, og þá sérstaklega skólabörn sem ferðast daglega með strætó og gera biðina þægilegri á meðan beðið er eftir strætisvagni, segir í tilkynningu frá Reykjanesbæ.