Nýjast á Local Suðurnes

Miklum verðmætum stolið frá Golfklúbbi Suðurnesja

Nokkuð hefur verið um innbrot í húsnæði í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum.

Brotist var inn í vélageymslu Golfklúbbs Suðurnesja og þaðan stolið miklum verðmætum, þar á meðal fartölvu, miklu magni af verkfærum, eldsneyti, rafstöð og bensíndælu.

Þá var brotist inn í íbúðarhúsnæði og þremur sjónvörpum stolið. Einnig var brotist inn í bifreið og nýrri Canonmyndavél stolið.

Lögregla rannsakar málin.