Nýjast á Local Suðurnes

Með frostnar pítsur í rassvösunum og kjöt innanklæða

Fingralangur viðskiptavinur sem heimsótti Bónusverslun í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum nýverið reyndist vera með litlar frosnar Billys pítsur í rassvösunum þegar afskipti voru höfð af honum. Einnig var hann með þrjá pakka af kjöti sem hann hafði falið innanklæða.

Maðurinn var með körfu í versluninni, sem hann tíndi vörur í og greiddi fyrir þær. Hann lét hins vegar ógert að greiða fyrir pítsurnar og kjötið, að andvirði á fimmta þúsund krónur. Hann viðurkenndi brot sitt.