Nýjast á Local Suðurnes

Lögregla leitar stolinna gáma og rörastillansa

Lögreglan á Suðurnesjum leitar að 2 gámum sem virðist hafa verið stolið af Ásbrú.

Um er að ræða tvo 20 ft. gáma sem voru teknir frá Funatröð 8 á Ásbrú, en þeir voru þar við húsið. Annar gámurinn er innréttaður með klósetti og kaffiaðstöðu, með sæti og borðum fyrir 8-10 manns , grár að lit. Gengið inn um hlið á honum.

Hinn gámurinn var vinnugámur, rauður að lit. Einnig er horfið þaðan rörastillans, að gerðinni Bostic frá Byko,en sá er 220 lengdarmetrar.

gamathjofnaður

Gámarnir voru staðsettir þar sem rauði hringurinn á myndinni er.

Ef einhver hefur upplýsingar um hvarf þessarar gáma þá má hinn sami hafa samband við Lögregluna á Suðurnesjum, annað hvort í gegnum Facebook eða með því að hringja í síma 444-2200.