Kadeco innheimtir fyrir ríkið

Íbúar og fyrirtæki á Ásbrú eru nú að fá reikninga fyrir lóðaleigu frá Þróunarfélagi Keflavíkurflugvallar (Kadeco). Ástæðan er sú að íslenska ríkið á allt land á Ásbrú og hefur falið Kadeco að innheimta lóðaleigu af þeim sem búa eða reka starfsemi á svæðinu.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kadeco, en þar segir að innheimtukröfur hafi þegar verið settar í netbanka og að reikningar verði einnig sendir í pósti á næstu dögum.
Að auki innheimtir Reykjanesbær fasteignagjöld eins og venja er fyrir íbúðir og atvinnuhúsnæði og því fá íbúar og rekstraraðilar tvo reikninga:
· Kadeco – lóðaleiga
· Reykjanesbær – fasteignagjöld
Þetta er vegna þess að ríkið er landeigandi á Ásbrú en Reykjanesbær sér um skipulagsmál.


















