Nýjast á Local Suðurnes

Bláa lóninu lokað í viku

Bláa lón­inu verður lokað í eina viku frá og með deg­in­um í dag og til 16. nóv­em­ber klukk­an 07.00.

Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá fyrirtækinu, en þar segir að þetta hafi verið ákveðið þrátt fyr­ir að viðbúnaðarstig al­manna­varna hafi ekki verið aukið, staðan verði met­in í fram­hald­inu.

Megin­á­stæður eru sagðar trufl­un á upp­lif­un gesta í nótt og langvar­andi aukið álag á starfs­menn.

Starfs­menn fá greidd full laun meðan á lok­un stend­ur og gest­ir fulla end­ur­greiðslu, seg­ir í til­kynn­ing­unni.