Hótel og gistiheimili á Suðurnesjum þjónusta fólk á leið í sóttkví
Fjöldi hótela og gistiheimila hafa skráð sig á lista Ferðamálastofu yfir þá staði sem eru tilbúnir að taka á móti gestum sem þurfa í sóttkví eftir komu til Íslands, þar á meðal fjölmörg á Suðurnesjum. Fjöldi Íslendinga er nú á leið til landsins og þurfa allir að sæta sóttkví.
Listinn er uppfærður 2-3 sinnum á dag og birtur á vef Ferðamálastofu og á covid.is.
Skráning fer fram á vefsíðu Ferðamálastofu og hægt er að finna listan hér.