Nýjast á Local Suðurnes

Hnífur skaust í fót

Vinnu­slys varð í ótilgreindu fyrirtæki á Suðurnesjum síðastliðinn föstu­dag þegar starfsmaður fyrirtækisins ætlaði að sparka frá hníf sem lá á gólf­i. Ekki vildi bet­ur til en svo að hníf­ur­inn lenti á plast­kari og skaust til baka í fót viðkom­andi svo úr blæddi.

Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá lög­regl­unni á Suður­nesj­um. Í tilkynningunni kemur fram að meiðslin hafi reynst vera óveru­leg.