Nýjast á Local Suðurnes

Gas úr borholu orsök banaslyss á Reykjanesi

Vinnueftirlit, heilbrigðiseftirlit og lögregla rannsaka banaslys, sem varð í fiskverkun á Reykjanesi í morgun. Lögreglu barst tilkynning um slysið klukkan 7:15, en í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurnesjum kemur fram að lífgunartilraunir hafi ekki borð árangur og maðurinn var úrskurðaður látinn.

Komið hefur í ljós að gas úr borholu mun hafa farið inn á staðbundna vatnsveitu.  Verið er að ljúka nauðsynlegum hreinsunarstörfum og engin hætta  er á ferðum varðandi almenning.  Vinnusvæðið umhverfis slysstað var rýmt og stendur sú rýming enn.  Ekki er lokað fyrir almenna umferð.  Neysluvatn til almennings á Suðurnesjum er í góðu lagi.

Rannsókn stendur enn yfir og er ekki unnt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu, segir í tilkynningu.