Dæmd til að greiða lesbísku pari á aðra milljón
Kona úr Reykjanesbæ var dæmd í skilorðsbundið fangelsi til þriggja mánaða og til að greiða lesbísku pari tæplega 1,3 milljónir króna í skaðabætur eftir að hafa hótað, hrellt og niðurlagt parið með öðrum hætti.
Hótanirnar voru munnlegar, samkvæmt dómnum, en líka með látbragði eins og að draga vísifingur yfir háls sinn. Þá skrifaði hún stórum stöfum með málningu á götuna við heimili þeirra orð með tilvísanir í kynfæri kvenna.