Brotist inn í geymslur í Reykjanesbæ
Brotist var inn í nokkrar geymslur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina. Þær tilheyra fjölbýli á Ásbrú og hafði læsing á hurð sem gengur að þeim verið brotin upp. Síðan höfðu járngrindum sem aðskilja geymslurnar verið spenntar upp og komist með þeim hætti inn í þær. Búið var að róta til í þeim en ekki liggur fyrir hvort einhverju og þá hversu miklu var stolið.
Þá var brotist inn í geymslu í Keflavík og þaðan tekin verkfæri ásamt tveimur ferðatöskum.
Lögregla rannsakar málin.