Nýjast á Local Suðurnes

Bræða snjó og klaka af körfuboltavöllum

Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur hefur verið dugleg við að halda iðkendum sínum við efnið á meðan á samgöngubanni stendur, en allar æfingar á vegum félagsins falla niður líkt og hjá öðrum íþróttafélögum til 23. mars næstkomandi, hið minnsta.

Þjálfarar á vegum deildarinnar hafa verið duglegir við að nýta samfélagsmiðlahópa til deilingar á æfingum sem hægt er að stunda heima og nú tóku menn sig til og hófu að hreinsa snjó af körfuboltavelli við Ljónagryfjuna þannig að ungir iðkendur geti stundað íþróttina úti. Verkefnið er unnið í samvinnu við verktakafyrirtækið Youns og miðar vel samkvæmt stöðuuppfærslu körfuknattleiksdeildarinnar á Fésbókinni sem sjá má hér fyrir neðan.