Nýjast á Local Suðurnes

Birgir leiðir lista Miðflokksins í Suðurkjördæmi – Sex af Suðurnesjum á listanum

Mynd: Wikipedia

Birgir Þórarinsson sérfræðingur í alþjóðasamskiptum og guðfræðingur mun leiða lista Miðflokksins í Suðurkjördæmi í komandi alþingiskosningum.

Birgir er með meistarapróf í alþjóðasamskiptum og utanríkisþjónustu (MIS) frá American University, Washington D.C. í Bandaríkjunum, með áherslu á hagsmunagæslu ríkja á alþjóðavettvangi. Einnig hefur hann BA próf í guðfræði frá Háskóla Íslands og próf í Opinberri stjórnsýslu og stjórnun frá EHÍ.

1. Birgir Þórarinsson, sérfr. í alþjóðasamskiptum og guðfræðingur, Vogum.
2. Elvar Eyvindsson, viðskiptafræðingur og bóndi, Rangárþingi eystra.
3. Sólveig Guðjónsdóttir, bæjarstarfsmaður, Árborg.
4. Ásdís Bjarnadóttir, garðyrkjubóndi, Hrunamannahreppi.
5. Bjarni Gunnólfsson, hótel og rekstrarfræðingur, Reykjanesbæ.
6. Ingibjörg Jenný Jóhannesdóttir, sölumaður og nemi, Reykjanesbæ.
7. Herdís Hjörleifsdóttir, félagsráðgjafi, Hveragerði.
8. Jón Gunnþór Þorsteinsson, húsasmíðanemi, Flóahreppi.
9. Erling Magnússon, lögfr. Árborg.
10. G. Svana Sigurjónsdóttir, myndlistarmaður, Kirkjubæjarklaustri.
11. Sæmundur Jón Jónsson, bóndi, Höfn Hornafirði.
12. Gunnar Már Gunnarsson, umboðsmaður, Grindavík.
13. Ingi Sigurjónsson, hamskeri, Vestmannaeyjum.
14. Úlfar Guðmundsson, héraðsdómslögmaður, Reykjanesbæ.
15. Þóranna L Snorradóttir, grunnskólakennari, Grímsnes – og Grafningshreppi.
16. Guðrún Tómasdóttir, ferðaþjónustubóndi, Ölfus.
17. Hansína Ásta Björgvinsdóttir, eldri borgari, Þorlákshöfn.
18. Valur Örn Gíslason, pípulagningameistari, Ölfus.
19. Jafet Egill Ingvason, lögregluvarðstjóri, Vík Mýrdal.
20. Rúnar Lúðvíksson, fv. framkvæmdastjóri, Reykjanesbæ