Allt að 40% ódýrara vín í Fríhöfninni

Verðmunur á vínflöskum í ÁTVR og Fríhöfninni getur numið allt að 40% og í krónum talið er hann mest 1.700 krónur.
Þetta kemur fram í frétt um verðkönnun Túrista. Á vefnum má finna nákvæma sundurliðun, en þar segir að sala á léttvíni hafi aukist á kostnað bjórsins eftir að reglum um tollfrjálsan innflutning flugfarþega var breytt í júní 2016.
Samkvæmt verðkönnuninni var verðbilið að jafnaði 28%. Minnsti verðmunurinn var á Chateau Cantenac Brown, um 18,7%, en mestur á Glen Carlou Haven Chardonnay, eða 40%.


















