Nýjast á Local Suðurnes

Aðgerðastjórn kemur saman daglega

Stjórnendur Suðurnesjabæjar vinna eftir viðbragðsáætlun almannavarna vegna heimsfaraldurs og gefin hefur verið út viðbragðsáætlun Suðurnesjabæjar vegna faraldursins sem stjórnendur og starfsfólk vinnur eftir. Sérstök aðgerðastjórn er starfandi sem er skipuð bæjarstjóra og sviðsstjórum stjórnsýslusviðs, skipulags-og umhverfissviðs og fjölskyldusviðs.

Aðgerðastjórnin kemur að jafnaði daglega saman til að fara yfir þróun faraldursins og taka ákvarðanir um aðgerðir. Í þessum verkefnum er unnið með stjórnendum sveitarfélgsins og stofnana þess og þess gætt að upplýsingamiðlun sé skilvirk. Í tilkynningu á vef sveitarfélagsins segir að gripið hafi verið til ýmissa ráðstafana til að bregðast við með það að markmiði að standa vörð um mikilvæga starfsemi og þjónustu sveitarfélagsins. Sérstaklega hefur verið horft til hagsmuna fólks sem er í viðkvæmri stöðu, elstu hópa íbúanna og þeirra sem eru með undirliggjandi sjúkdóma.

Þróun faraldursins er mjög hröð og breytist nánast frá degi til dags. Þar af leiðir breytast viðbrögð og aðgerðir hratt og viðbragðsáætlanir og aðrar aðgerðaáætlanir geta breyst með stuttum fyrirvara.  Stjórnendur Suðurnesjabæjar fylgjast því vel með leiðbeiningum og fyrirmælum stjórnvalda um aðgerðir til að hefta útbreiðslu veirunnar og beita aðgerðum í samræmi við það.

Um leið og mikilvægt er að takast á við þetta stóra verkefni af yfirvegun er samstarf og samstaða allra aðila mikilvæg. Það er sameiginlegt verkefni okkar allra að takast á við þessar fordæmalausu aðstæður.

Frekari upplýsingar verða birtar á heimasíðu sveitarfélagsins eftir því sem fram vindur og eru íbúar hvattir til að fylgjast með tilkynningum.