Árlegur Vinadagur erkifjenda á morgun
Árlegi Vinadagur yngri flokka Keflavíkur og Njarðvíkur í körfuknattleik verður haldinn í Blue-Höllinni á morgun, 5. janúar.
Þar munu iðkendur beggja liða frá leiksskólaaldri og upp í 6. bekk grunnskóla mætast í æfingaleikjum og enda daginn á pizzaveislu í boði aðal styrktaraðilans, Humarsölunnar.
Þetta er í þriðja skiptið sem erkifjendurnir í körfunni halda þennan viðburð sem ávallt hefur verið vel sóttur, en gert er ráð fyrir að yfir 300 iðkendur taki þátt að þessu sinni.