Milljón farþegar með strætóum Isavia – Hafa keypt 13 nýjar rútur
Myndin tengist fréttinni ekki beintFjöldi farþega sem fluttir hafa verið milli Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar og flugvéla með rútum mun vera kominn yfir milljón. Isavia er því með stærri fyrirtækjum í strætórekstri hér á landi, en til samanburðar flutti Strætó bs. rúmlega 10 milljónir farþega í fyrra.
Til að anna þessum flutningum hefur Isavia fest kaup á 12 stórum farþegarútum og einni minni rútu. Einnig hafa verið teknir í notkun tveir lyftubílar til að ferja fólk í hjólastólum á milli að því að greint er frá í Morgunblaðinu í dag.




















