Forstjóri og rekstrarstjóri hætta hjá Kaffitári
Kristbjörg Edda Jóhannsdóttir er hætt sem forstjóri Kaffitárs eftir rúmlega ár í starfi og Lilja Pétursdóttir er hætt sem rekstrarstjóri kaffihúsa fyrirtækisins.
Aðalheiður Héðinsdóttir, stofnandi Kaffitárs, tekur við forstjórastarfinu af Kristbjörgu sem tekur við stjórnarformennsku í fyrirtækinu. Þá hefur Andrea Róberts verið ráðin í starf Lilju og tekur við rekstrarstjórn Kaffihúsa.
Breytingarnar eru gerðar í mesta bróðerni, segir Aðalheiður í samtali við Viðskiptablaðið.