Nýjast á Local Suðurnes

Reynir og Víðir áfram í Borgunarbikarnum

Sandgerðingarnir í Reyni gerðu góða ferð austur fyrir fjall í kvöld þar sem þeir lögðu Hamar frá Hveragerði að velli í annari umferð Borgunarbikarsins. Reynismenn höfðu skorað fjögur mörk gegn einu heimamanna áður en yfir lauk og verða því í pottinum þegar dregið verður í 32ja liða úrslitin á föstudag.

Víðismenn verða einnig í pottinum þegar dregið verður í næstu umferð Borgunarbikarsins, en þeir lögðu Berserki að velli á Nesfiskvellinum í Garði. Líkt og grannarnir úr Sandgerði skoruðu Víðismenn fjögur mörk og fengu á sig eitt.

Það verða því fjögur Suðurnesjalið í pottinum þegar dregið verður á föstudaginn, en Keflavík og Grindavík höfðu áður tryggt sitt pláss í pottinum.