Nýjast á Local Suðurnes

Michael Craig til liðs við Njarðvík

Njarðvík­ing­ar hafa samið við 24 ára gamlan fram­vörð, Michael Craig, um að leika með liðinu út leiktíðina í Dom­in­os-deild karla í körfuknatt­leik. Njarðvík­ing­ar hafa leitað að leik­manni frá því að þeir sögðu upp samn­ingn­um við Marquis Simmons fyrr í mánuðinum.

Michael Craig er fæddur árið 1991, er mikill að vexti, 195 cm og 110 kg.  Hann lék með Southern Mississippi háskólanum í Bandaríkjum, þar sem hann skoraði 12 stig í leik og tók sjö fráköst.

Fyrr í dag tilkynntu Njarðvíkingar að samningar hefðu náðast við bakvörðinn öfluga Odd Kristjánsson um að leika með liðinu. Oddur hefur verið einn af burðarásum liðs ÍR í vetur og skorað um 18 stig á leik að meðaltali.