Jafnt hjá Njarðvík á Húsavík – Veittu Keflvíkingum stuðning gegn KA í leiðinni
Ari Steinn Guðmundsson bjargaði stigi fyrir Njrðvíkinga þegar þeir sóttu Völsung heim á Húsavík í dag, Ari Steinn skoraði jöfnunarmark Njarðvíkinga á 59. mínútu leiksins, eftir að Völsungar höfðu komist yfir á 25. mínútu.
Þegar fimm umferðir hafa verið leiknar í 2. deildinni sitja Njarðvíkingar í þriðja sætinu, með tíu stig og sex mörk í plús.
Njarðvíkingar gerðu 90 mínútna hlé á leið sinni til Húsavíkur og veittu grönnum sínum úr Keflavík stuðning í baráttunni við KA fyrr um daginn, leiknum hjá Keflavík lauk einnig með 1-1 jafntefli.