Hafþór ráðinn þrótta- og tómstundafulltrúi Reykjanesbæjar
![einelti vinnuskoli](https://i1.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2015/07/einelti-vinnuskoli.jpg?resize=620%2C264)
Hafþór Barði Birgisson hefur verið ráðinn nýr íþrótta- og tómstundafulltrúi Reykjanesbæjar.
Hafþór er tómstunda- og félagsmálafræðingur frá Kennaraháskóla Íslands og hefur starfað að tómstunda- og forvarnarmálum hjá Reykjanesbæ í um 16 ár. Í dag starfar Hafþór sem tómstundafulltrúi og er því vel heima í stórum hluta starfsins. Hafþór mun taka við starfinu 1. ágúst nk.