Öskudagur got talent: Flottustu búningarnir og bestu atriðin verðlaunuð
Verðlaun voru veitt fyrir flottustu búningana og skemmtilegustu atriðin á “Öskudagur got talent 2016” í ráðhúsi Reykjanesbæjar síðastliðinn föstudag.
Það voru pizzaveislur, bíómiðar og viðurkennigarskjöl sem komu í hlut þeirra sem fengu flest atkvæði dómnefndar. Fjörheimar got talent þótti takast einstaklega vel í ár en um 30 atriði tóku þátt í keppninni.