Vöfflukaffi og ís á opnunarhátíð Öskju og Dekkjahallarinnar

Bílaumboðið Askja mun opna nýja og glæsilega starfsstöð að Njarðarbraut 11 í Reykjanesbæ laugardaginn 13. september. Með þessari fjárfestingu fær svæðið heildstæða þjónustu þar sem allt fyrir bílinn er undir sama þaki: sölu- og þjónustudeild fyrir Mercedes-Benz, smart, Kia og Honda, auk hjólbarðaþjónustu hjá systurfélaginu Dekkjahöllinni.
„Þetta er spennandi áfangi fyrir svæðið,“ segir Jón Halldór Eðvaldsson, sölustjóri Öskju í Reykjanesbæ í tilkynningu frá fyrirtkinu „Við erum að koma með sterka blöndu af þjónustu undir eitt þak – sölu á nýjum og notuðum bílum, ráðgjöf, viðgerðir og reglubundna þjónustu – ásamt allri dekkjaþjónustu. Þetta er mikilvæg fjárfesting sem mun efla þjónustu við bæði einstaklinga og fyrirtæki hér á svæðinu. Sjálfur hlakka ég til að styrkja tengslin við samfélagið og viðskiptavini sem ég hef áður átt góð samskipti við.“
Opnunarhátíð Öskju og Dekkjahallarinnar
Gestum verður boðið upp á nýbakaðar vöfflur, ís og kaffi, ásamt því að skoða hina glæsilegu aðstöðu og hitta starfsfólkið í húsakynnum fyrirtækisins að Njarðarbraut 11 milli kl. 12-16 – laugardaginn 13. september.
„Ég hlakka til að sjá sem flesta, sýna nýju aðstöðuna og spjalla við gamla og nýja kunningja.“ bætir Jón Halldór við.