Úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir árás í Reykjanesbæ
Maður sem hefur ítrekað komið við sögu lögreglu allt frá árinu 2020 hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 24. apríl. Maðurinn er grunaður um svæsna árás sem átti sér stað þann 10. apríl síðastliðinn, í Reykjanesbæ.
Er maðurinn grunaður um að hafa stungið annan mann með hnífi í höndina eftir að hafa hótað félaga mannsins. Einnig er hann sagður hafa haft hafnaboltakylfu meðferðis.
Maðurinn er erlendur og er í ólöglegri dvöl í landinu, en Útlendingastofnun hafði úrskurðað um brottvísun mannsins þann 4. janúar síðastliðinn. Maðurinn hafi hins vegar ekki orðið við því að yfirgefa landið eins og honum beri að gera., segir á vef DV, sem fjallar ítarlega um málið.