Tveir titlar í hús hjá Keflavík
Keflvíkingar lönduðu tveimur titlum í hús í gær þegar liðið varð bikarmeistari bæði í karla- og kvennaflokki í körfubolta.
Karlaliðið hafði sigur á Tindastóli 92-79 í kaflaskiptum leik, en Tindastóll hafði náð 14 stíga forskoti snemma í þriðja leikhluta, sem Keflvíkingar náðu að vinna upp og landa nokkuð öruggum sigri.
Stiahæstur í liði Keflavíkur var Remy Martin með 23 stig.
Kvennamegin unnu Keflvíkingar bikarinn í 16. skipti en í fyrsta skipti frá árinu 2018 er liðið lagði Þór frá Akureyri að velli, 89-67.
Keflavíkurstúlkur voru nokkuð sterkari á pappír fyrir leik, en Þórsarar mættu grimmar til leiks sem var í nokkru jafnvægi fyrstu þrjá leikhlutana, en þá sigu Keflvíkingar hægt og bítandi framúr og lönduðu öruggum sigri.
Daniela Wallen, Elisa Pinzan og Birna Valgerður Benonýsdóttir skoruðu 15 stig hver fyrir Keflavík.
Mynd: Facebook / Kkd. Keflavíkur