sudurnes.net
Tveir titlar í hús hjá Keflavík - Local Sudurnes
Keflvíkingar lönduðu tveimur titlum í hús í gær þegar liðið varð bikar­meist­ari bæði í karla- og kvennaflokki í körfu­bolta. Karlaliðið hafði sig­ur á Tinda­stóli 92-79 í kaflaskiptum leik, en Tindastóll hafði náð 14 stíga forskoti snemma í þriðja leikhluta, sem Keflvíkingar náðu að vinna upp og landa nokkuð öruggum sigri. Stia­hæst­ur í liði Kefla­vík­ur var Remy Mart­in með 23 stig. Kvennamegin unnu Keflvíkingar bikarinn í 16. skipti en í fyrsta skipti frá ár­inu 2018 er liðið lagði Þór frá Ak­ur­eyri að velli, 89-67. Keflavíkurstúlkur voru nokkuð sterkari á pappír fyrir leik, en Þórsarar mættu grimmar til leiks sem var í nokkru jafnvægi fyrstu þrjá leikhlutana, en þá sigu Keflvíkingar hægt og bítandi framúr og lönduðu öruggum sigri. Daniela Wal­len, Elisa Pinz­an og Birna Val­gerður Beno­nýs­dótt­ir skoruðu 15 stig hver fyr­ir Kefla­vík. Mynd: Facebook / Kkd. Keflavíkur Meira frá SuðurnesjumKeflavíkursigur í tvíframlengdum leikKeflvíkingar unnu verðskuldaðan sigur í LjónagryfjunniGríðarlega mikilvægur sigur hjá NjarðvíkMikilvægur sigur Keflvíkinga á ÞórKeflavíkurhraðlestin óstöðvandi í Dominos-deildinniKeflavík fær Þór Þ. í heimsókn og Grindavík mætir ÍR í MaltbikarnumHvetja fyrirtæki á Suðurnesjum til að auka stuðning við íþróttafélögKeflavík gegn Fjölni í kvöld – HS Orka býður frítt á völlinnVaramaðurinn tryggði Keflavík sigur á lokmínútunniLéttur sigur KR-inga í toppslagnum