Nýjast á Local Suðurnes

Tveir fluttir á Landspítala eftir vinnuslys

Tvö vinnuslys urðu um síðastliðna helgi í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum. Maður féll aftur fyrir sig úr stiga utan á vinnulyftu á Keflavíkurflugvelli og lenti á steyptu flughlaðinu. Hann var fluttur með sjúkrabifreið á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi og Vinnueftirlitinu gert viðvart um óhappið.

Í hinu tilvikinu var maður að fara úr bát sem lá við bryggju í Grindavíkurhöfn en skrikaði fótur og datt á bryggjuna. Hann var fluttur á Landspítalann í Fossvogi og reyndist vera með brotna mjaðmarkúlu.