Nýjast á Local Suðurnes

Tafir á umferð vegna sprenginga – Vegfarendur virði merkingar við vinnusvæði

Myndin tengist fréttinni ekki beint

Vinna er hafin við gerð mislægra vegamóta Reykjanesbrautar í Hafnarfirði og Krýsuvíkurvegar. Því þarf að takamarka umferðarhraða á vinnusvæðinu við 50 km/klst.

Vegna sprenginga þarf að stöðva umferð um vinnusvæðið á Reykjanesbraut í stutta stund (2-3 mínútur í senn), allt að þrisvar sinnum á dag.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni og eru vegfarendur eru beðnir að sýna aðgát og virða merkingar við vinnusvæðið.